Góð ráð við útileigu og hátíðirHvað er gott að hafa með sér á útihátíð?
Þegar kemur að útihátíðum er um auðugan garð að gresja. Hvort sem það er erlendis eða hér heima þá eru nokkrir hlutir sem gott er að hafa í huga þegar kemur að úti- og tónlistarhátíðum. Ef þú þarft að ferðast með mikið á bakinu til að komast að hátíðarsvæðinu er betra að taka sem minnst með sér. Fyrir utan hluti eins og tjald, svefnpoka og útilegustóla þá eru hér nokkrir hlutir sem er gott að hafa með sér:
Svo má ekki gleyma því að syngja! Ef gítar er við höndina er um að gera að nýta sér Guitar Party, en þar má finna fjölda söngtexta og gripa við íslensk og erlend lög Að tjalda Hafðu meðferðis fána eða annað skraut til þess að skreyta tjaldið þitt. Þá verður auðveldara að finna það um miðja nótt þegar það er komið myrkur og öll tjöld líta eins út. Ef þú ert með hóp sem er með partýtjald er einnig hægt að merkja það. Betra er að tjalda ofar en neðar. Þá eru minni líkur á að það flæði inn í tjaldið ef það rignir mikið. Einnig er betra að tjalda í hæfilegri fjarlægð frá bæði ferðaklósettum og öllum grindverkum eða skurðum sem afmarka hátíðarsvæðið. Þvaglyktin þar getur verið alveg jafn slæm og við klósettin. Þó að það sé freistandi að tjalda eins nálægt tónleikasvæðinu og mögulegt er eru margir kostir við það að tjalda lengra í burtu. Lætin eru minni og það er ólíklegra að einstaklingar sem eiga leið framhjá detti á tjaldið þitt, brjóti það eða ákveða að það sé fínn náttstaður. Það er líka gott að setja sem mest inn í tjald á meðan farið er á tónleika, útilegustóla líka. Ef drykkir eru skildir eftir út er nánast bókað að þeir muni hverfa. Þegar búið er að tjalda og koma sér fyrir er ekkert eftir nema að skemmta sér. Hvar má tjalda? Ekki kjósa allir að fara á skipulagðar útihátíðir og kjósa þess heldur að flakka um landið og njóta þess að tjalda um landið. Því er vert að hafa í huga þau lög og reglur sem gilda um að tjalda á Íslandi. Þumalputtareglan er sú að það er í lagi að tjalda við alla aðalvegi og á óræktuðu landi yfir eina nótt. Vilji maður hinsvegar tjalda nærri húsi ber manni að fá leyfi hjá húseiganda. Ef þú kannt ekki að tjalda, eða átt ekki tjald, má nýta sér þjónustu eins og rentatent.is Það er alltaf best að nýta sér tjaldsvæði - tjalda.is enda bjóða þau oftast upp á þjónustu. Áfengisneysla og almennar djammreglur Áfengisneysla fylgir oft skemmtunum. Hér eru nokkur einföld ráð fyrir neyslu áfengis.
Góða skemmtun |